Lag dagsins er hið þekkta sænska þjóðlag Ack Värmeland du sköna, sem hér fylgir í flutningi Jan Johansson og félaga hans á plötunni Musik genom fyra sekler. Þessa stórskemmtilegu og á köflum stórsérkennilegu plötu uppgötvaði ég ekki fyrr en nýlega, þegar ég tók Jan Johansson rispu eftir að hafa horft á heimildamynd um hann í Ríkissjónvarpinu. Jan Johansson tók plötuna upp ásamt hópi af tónlistarmönnum árið 1968, sama ár og hann lést í bílslysi 37 ára gamall. Meira um það síðar, í annarri færslu.
Reggísveitin Hjálmar gerði vinsæla útgáfu af laginu Ack Värmeland du sköna fyrir nokkrum árum, við ljóðið Ég vil fá mér kærustu eftir Indriða Einarsson. (Smá útúrdúr: Indriði þessi var ekki bara leikritaskáld og merkilegur leikhúsfrumkvöðull, heldur var hann líka fyrsti Íslendingurinn til að ljúka prófi í hagfræði og sinnti í yfir aldarfjórðung hinu virðulega starfi endurskoðandi landsreikninganna).
Einhvern veginn uppfærðist Ack Värmeland du sköna í Dear Old Stockholm á ensku og lagið varð undir því nafni vinsælt meðal jazztónlistarmanna New York á 6. og 7. áratugnum, meðal annars Stan Getz, Miles Davis, John Coltrane og Paul Chambers. Fræg er þessi upptaka Miles Davis kvintettsins á plötunni ‘Round About Midnight frá árinu 1957.
Og í lokin, þessi silkimjúka útgáfa með Stan Getz og sænskum tónlistarmönnum frá árinu 1951.