John og Elvin / Elvin og John

Sú plata með „sálarbræðrunum“ Coltrane og Jones sem ég hef mest hlustað á í gegnum tíðina er ábyggilega útgáfa þess fyrrnefnda, Africa/Brass, frá árinu 1961, sú fyrsta sem hann sendi frá sér hjá plötufyrirtækinu Impulse! Á upprunalegu plötunni voru einungis þrjú lög: Africa, Blues Minor, og enska þjóðlagið Greensleeves, en á þeirri útgáfu sem ég … Continue reading John og Elvin / Elvin og John

Að berja úr eða inn – Elvin Jones

Fyrir einhverjum fjórum eða fimm árum var ég staddur á Skugga-Baldri, barnum við Austurvöll, sem á þeim tíma bauð upp á jazzprógrömm. Mikill missir að þeim stað, sem hafði yfir sér skemmtilegt búlluyfirbragð, þótt hinn virðulegi Austurvöllur blasti við út um gluggann. En athvörf fyrir jazzmúsík eiga sér yfirleitt ekki langa lífdaga, nema þá helst … Continue reading Að berja úr eða inn – Elvin Jones