
Fyrir einhverjum fjórum eða fimm árum var ég staddur á Skugga-Baldri, barnum við Austurvöll, sem á þeim tíma bauð upp á jazzprógrömm. Mikill missir að þeim stað, sem hafði yfir sér skemmtilegt búlluyfirbragð, þótt hinn virðulegi Austurvöllur blasti við út um gluggann. En athvörf fyrir jazzmúsík eiga sér yfirleitt ekki langa lífdaga, nema þá helst Djúpið undir Horninu. Þetta kvöld á Skugga-Baldri hitti ég trommuleikarann Magnús Trygvason Eliassen í fyrsta skipti; hann var að spila með einhverjum – man ekki hverjum. (Hér gæti ég auðvitað bætt við að Magnús spili á annarri hverri jazzplötu á Íslandi, plús öðrum plötum – það er ástæða fyrir því; Magnús er dásamlegur músíkant – en ég læt ógert að nefna þetta.) Allavega. Við Magnús hittumst við barinn, og þegar ég hafði kynnt mig og spjallað við hann í smá stund – það spjall hefur ábyggilega snúist að mestu um jazztrommuleik – sagði ég honum frá því að ég hefði eitt sinn verið á tónleikum með Elvin Jones, og tekið í hönd hans að loknum tónleikunum. Magnús brást við þeim tíðindum með því að spyrja hvort hann mætti taka í höndina á mér. (Sem auðvitað var sagt í gríni; ég var að vísu hræddur um eitt augnablik að ég hefði verið að upphefja sjálfan mig með sögunni um Elvin, en framhald samtals okkar Magnúsar losaði mig undan þeirri sjálfsásökun.) Atvikið með Elvin átti sér stað á ekki vondum stað: Ronnie Scott´s á Frith Street í London, árið 2000, um það bil fjórum árum áður en Elvin lést. Ég fór á tónleikana með Geir heitnum Svanssyni – þetta var frábært kvöld með „Jazzmaskínu“ Elvins, jafnvel þótt hljómsveitin væri nýbúin að borða lamb chops áður en þeir mættu á sviðið, eins og Elvin sagði frá – og að loknu settinu tókst mér að nálgast mitt „trommugoð“, alveg áreynslulaust, og þakka honum fyrir með handtaki. Sem var þétt af beggja hálfu. Ég sé reyndar eftir að hafa ekki verið aðeins ýtnari og beðið hann um að gefa mér eins og einn kjuða – en eflaust hefði slík frekja bara eyðilagt augnablikið. Betra að eiga bros Elvins, og bjart augnaráð, í minningunni en að hafa mögulega fengið nei við beiðninni um kjuðann. Ég hef örugglega skrifað fleiri en eina færslu hér á Ráðlögðum um aðdáun mína á Elvin Jones, og held því aftur af mér í þetta sinn með að lýsa trommuleik hans (sem er reyndar eitthvað sem ég hef ekki orðaforða í) – í staðinn læt ég fylgja með eitt tóndæmi frá árinu 1967: upptöku sem gerð var á Pookie´s Pub í New York, stuttu eftir að Elvin sagði skilið við kvartett Johns Coltrane. Með honum eru Joe Farrell á tenórsaxófón, Billy Green á píanó, og Wilbur Little á bassa. Lagið er Oleo eftir Sonny Rollins. Þetta er á þriggja platna albúmi sem kom út 2022: Revival, Live at Pookie´s Pub; og ég vel Oleo sérstaklega vegna trommusólós Elvins, sem mér hefur stundum dottið í hug (eða alltaf, þegar ég hlusta á þetta) að berji allt vit úr kollinum á mér – eða, sem er líklegra: berji inn í mig meira vit en ég hef yfir að ráða.
– Bragi Ólafsson