John og Elvin / Elvin og John

Sú plata með „sálarbræðrunum“ Coltrane og Jones sem ég hef mest hlustað á í gegnum tíðina er ábyggilega útgáfa þess fyrrnefnda, Africa/Brass, frá árinu 1961, sú fyrsta sem hann sendi frá sér hjá plötufyrirtækinu Impulse! Á upprunalegu plötunni voru einungis þrjú lög: Africa, Blues Minor, og enska þjóðlagið Greensleeves, en á þeirri útgáfu sem ég eignaðist fyrst, The Complete Africa/Brass Sessions, bættust við fleiri upptökur, meðal annarra Song of the Underground Railroad. Mér datt í hug að setja þá upptöku á fóninn hér á Ráðlögðum í tilefni þátta Péturs Grétarssonar um John Coltrane í Ríkisútvarpinu þessar vikurnar. Ég hef bara hlustað á brot úr einum þættinum – held að sá fjórði og síðasti sé á dagskrá núna í dag – en ég hlakka til að rúlla þeim öllum í gegn. Sem fyrr tel ég mig varla hafa orðaforða eða þekkingu til að lýsa þessari tónlist – ég verð auk þess alltaf orðlaus þegar ég hlusta á Elvin Jones, ekki síst þegar hann drífur áfram lög eins og Song of the Underground Railroad – en það er óhætt að nefna sérstaklega sóló McCoys Tyner á þessari stórkostlegu upptöku. Það er eitthvað. Ég hef einhvern tíma misst út úr mér, hugsanlega hér á Ráðlögðum, en kannski bara í útvarpi, að ég setji gjarnan plötuna Africa/Brass á fóninn þegar ég fyllist reiði eða angri gagnvart því ljóta og vonda sem gerist í heiminum – það er ekki lítið framboð af því þessa dagana – og þegar ég hlusta núna á tóndæmi dagsins sé ég enga ástæðu til að draga þau orð til baka. Fegurðin og ákefðin í þessari tónlist virkar á alla vegu.

– Bragi Ólafsson

Leave a Reply