A Child is Born eftir Thad Jones. Lög verða ekki mikið jólalegri en þetta. https://www.youtube.com/watch?v=F1jTqWLrzjI
Jólasveinninn kemur í kvöld
Annars var að rifjast upp fyrir mér þessi útgáfa Bill Evans af jólalaginu Santa Claus is Coming to Town, sem finna má á stangli innan um hversdagslegri jazz á diski sem hann gerði fyrir Verve útgáfuna. Ég hlustaði reglulega á þennan disk allan ársins hring á hraðbrautinni í Norður-Karólínu. Þetta hljómar ágætlega í 30 stiga hita og … Continue reading Jólasveinninn kemur í kvöld
Jólalagalisti Bessastaða, tillaga 2
Ég fékk fyrirspurn um daginn frá lesanda bloggsins um góðan jólajazzdisk, og þurfti eiginlega að fara undan í flæmingi. Eins vel og mér þykir jazzbúningur stundum geta klætt jólatónlist (t.d. á jólatónleikum Múlans í fyrra) hef ég nánast aldrei reynt að leita uppi góðar upptökur af jólalögum. (Ábendingar væru vel þegnar!) Sama dag og ég fékk … Continue reading Jólalagalisti Bessastaða, tillaga 2
Dave Brubeck
Tveir ofurstandardar úr smiðju Dave Brubeck í tilefni þess að hann hefði átt 96 ára afmæli í dag. https://www.youtube.com/watch?v=qUpCNgwPFXI https://www.youtube.com/watch?v=uyGyFPnmrBU
Jólalagalisti Bessastaða, tillaga 1
Meiri jólatónlist
Fyrsti í aðventu
Meiri Monk
Skammtur dagsins er fenginn að láni af síðunni Kafli á dag, sem hefur í dag verið haldið úti í nákvæmlega eitt ár. Þar birtust í gær tvær eiturfínar Thelonious Monk upptökur. Á annarri þeirra spilar John Coltrane með Monk, á hinni Johnny Griffin. Líkt og lesa má um í færslu gærdagsins á síðunni Kafli á dag stendur stjórnandi … Continue reading Meiri Monk
Mal Waldron
Þá að Mal Waldron, manni sem stundum er nefndur í sömu andrá og Thelonious Monk. Waldron var fjölhæfur og eftirsóttur píanóleikari í New York á sjötta áratugnum, spilaði meðal annars með Charles Mingus og Billie Holiday og snerti á ýmsum stefnum og stílum. Og heróíni, sem heyrði þó varla til tíðinda meðal jazztónlistarmanna New York borgar á þessum tíma. Upphaflega … Continue reading Mal Waldron
Þagnamaðurinn Þelóníus
Það er ekki nóg með að fólk hafi þurft að horfa upp á siðmenninguna riða til falls síðustu vikur heldur hefur ofan á allt saman orðið bloggfall hér á Ráðlögðum jazzskammti. En nú er þögnin rofin, og það með Thelonious Monk, manni sem hélt því fram að mesti hávaðinn byggi í þögninni og lét engan segja sér … Continue reading Þagnamaðurinn Þelóníus