Bragi Ólafsson sendir sinn vikulega jazzskammt úr fjármálahverfi Reykjavíkurborgar: Þetta verður alltaf erfiðara og erfiðara. Ráðlagður er að draga úr mér allan mátt. Að lokum (þegar kemur að plötum nr. 41 til 50) verður þetta orðið svo erfitt að ég einfaldlega ræð ekki við verkefnið. Mig minnir að ég hafi nefnt í fyrstu sendingunni að … Continue reading Næstsíðasti skammtur: 31 – 40
Uncategorized
Eitrun snúið við: 24 – 30
Framhaldsbréf frá Braga: Svo fullkomlega er ég meðvitaður um að lesendur hér á Ráðlögðum hafi engan áhuga á heilsufari mínu, að ég ætla ekki að minnast á það einu orði að ég er orðinn góður af jazzeitruninni. Ég ætla heldur ekki að afsaka að ég hafi einungis birt þrjú plötuumslög af tíu í síðasta innslagi … Continue reading Eitrun snúið við: 24 – 30
BABB Í BÁTINN
Þá er runninn upp nýr miðvikudagur og nýtt bréf dottið inn um rafrænu lúguna frá Braga Ólafssyni: Dear Recommended Re: Jazz Poisoning. Til stóð að birta plötuumslög númer 21 til 30 í dag, miðvikudag, en vegna jazzeitrunar – og takmarkaðra starfskrafta hennar vegna – reynist ekki unnt að birta nema þrjú umslög að sinni. Von … Continue reading BABB Í BÁTINN
11 til 20 – aðvörun tekur gildi
Bragi Ólafsson hefur sent póst númer tvö: Skyndilega – og allt í einu – gerði ég mér grein fyrir að kominn væri annar miðvikudagur í mars (reyndar sá þriðji í mánuðinum), og að komið væri að mér að birta uppáhalds jazzplötur nr. 11 til 20. Ég held ég hafi rankað við mér þegar ég hlustaði … Continue reading 11 til 20 – aðvörun tekur gildi
Þættinum hefur borist annað bréf
Í þetta sinn frá Braga Ólafssyni, sem ekki aðeins brást góðfúslega við beiðni bloggara um að skrifa lista yfir eftirlætis jazzplötur, heldur hefur hann boðað heila pistlaröð! Hið innsenda bréf er svohljóðandi: Nú er svo komið að ég hef verið beðinn, af hinum virta tónlistarmiðli á netinu, Ráðlögðum jazzskammti, að velja mínar 10 uppáhalds jazzplötur. … Continue reading Þættinum hefur borist annað bréf
Tríó Agnars Más í Kornhlöðunni
Á ellefu platna listanum hér að neðan er að finna diskinn Láð með tríói Agnars Más Magnússonar, sem auk hans er skipað Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni á bassa og Matthíasi MD Hemstock á trommur. Láð kom út árið 2007 og var annar diskur Agnars Más, sem sló með honum „íslenskan tón í djasssköpun sinni“, eins og … Continue reading Tríó Agnars Más í Kornhlöðunni
Þættinum hefur borist bréf
Magga Dóra, vinkona mín og nágranni í Boston og hjarta Reykjavikur (105), hefur skorað á mig að birta 10 plötur á 10 dögum, á Facebook, án orða. Svo að hér koma þær, 11 plötur í einum slurp, á Ráðlögðum jazzskammti. Allt án orða, í samræmi við fyrirmælin.
Jazz-Satie
Þegar maður er að lesa tilskipun frá Evrópusambandinu og tekur skyndilega eftir því að það hljómar eitthvað í Sennheiser-heyrnartólunum, í boði algóriþma Spotify, sem bókstaflega lætur mann ekki í friði, en maður verður samt að halda áfram að lesa tilskipunina, þá - einmitt þá - er ágætt að eiga svona stað á internetinu eins og … Continue reading Jazz-Satie
Brad Mehldau
Ég hef verið einlægur aðdáandi Brad Mehldau frá því að ég heyrði fyrstu tónana af disknum Introducing Brad Mehldau hljóma fyrir hérumbil fimmtán árum. Hann er einn af þessum jazzpíanistum sem hafa svo einkennandi stíl að maður þekkir þá af fáeinum nótum eða hljómum. Næstum eins og hann hafi enduruppgötvað jazz, eða sé bara að spila eitthvað allt … Continue reading Brad Mehldau