Bragi Ólafsson skrifar: Í tilefni af alþjóðlega jazzdeginum (sem ég hafði ekki hugmynd um að væri til, ekki fyrr en í byrjun vikunnar – sumir eru ekki meiri jazznördar en það), þá varð mér hugsað til trommuleikarans Joey Baron. Ég þekki ekki mikið til hans, og líklega á ég ekki nema tvær upptökur með honum … Continue reading Tveir alþjóðlegir: Joey Baron og Arthur Blythe
Alþjóðlegi jazzdagurinn og íslenskur jazzgagnagrunnur
Á morgun, 30. apríl, er alþjóðlegi jazzdagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim, þar á meðal hér á Íslandi. Jazzhátíð Reykjavíkur, Jazzklúbburinn Múlinn og Jazzdeild FÍH blása af því tilefni til jazzveislu sem verður streymt á netinu frá kl. 16 og fram á kvöld. Dagskrána er að finna hér. Það er gaman að segja frá því … Continue reading Alþjóðlegi jazzdagurinn og íslenskur jazzgagnagrunnur
Bill Evans tríóið í Finnlandi
Ein af perlum internetsins er þessi fimmtíu ára gamla upptaka af heimsókn Bill Evans tríósins á heimili finnska tónskáldsins Ilkka Kuusisto í Helsinki. (Ilkka er faðir fiðluleikarans Pekka Kuusisto sem margoft hefur spilað hér á landi.) Tríóið, sem auk Bill samanstóð á þessum árum af bassaleikaranum Eddie Gomez og trommaranum Marty Morell, var á tónleikaferð … Continue reading Bill Evans tríóið í Finnlandi
Esperanza Spalding
Gleðilegt sumar! https://www.youtube.com/watch?v=TQtXo4tiZxs
LOU OG DON
Borist hefur nýtt bréf frá Braga Ólafssyni: Auðvitað er það frekt af einum einstaklingi, eins og gerðist um daginn, að banka upp á – eða tromma – með 50 jazztitla á jafn lágstemmdu bloggi sem Ráðlagður er. Að vísu komu titlarnir í nokkrum skömmtum, og ég lét að jafnaði eina viku líða á milli sendinga. … Continue reading LOU OG DON
Villti jazzmaðurinn
Ég hef bara einu sinni beðið um óskalag í útvarpsþætti. Það var í þættinum Sjónmál, þætti um samfélagsmál sem var einu sinni á dagskrá Rásar 1 eftir hádegisfréttirnar. Ég hafði sent stuttan pistil inn í þáttinn frá Norður-Karólínu í Bandaríkjunum þar sem ég bjó þá - pistillinn fjallaði um umhverfisglæpi - og allt í einu … Continue reading Villti jazzmaðurinn
Sunnudagsklassík
Meiri morgunjazz
Skyndilega mundi ég eftir öðru lagi sem Morgunvaktin hefur verið að nota, How Deep is the Ocean eftir Irving Berlin, af plötunni Explorations með tríói Bill Evans (með Scott Lafaro og Paul Motian) frá árinu 1961. https://www.youtube.com/watch?v=Rmb8GPQtqXo Eðalplata, Explorations, og greinilega í uppáhaldi hjá tónlistarráðunautum Morgunvaktarinnar, enda er Nardis líka þaðan (sjá síðustu færslu). Annað … Continue reading Meiri morgunjazz
Morgunjazzinn
Hér eru nokkur númer fyrir þá sem sakna Morgunvaktarinnar á Rás 1 þessa dagana, en sá þáttur er sem kunnugt er pakkaður af góðri jazztónlist. Ég man ekki í svipinn fleiri lög sem koma þar fyrir, lesendur mega gjarnan fylla í eyðurnar! https://www.youtube.com/watch?v=Wy-v-FgiUD8 Þessi „Eþíó-jazz“ Mulatu Astatke hefur fylgt morgunútvarpinu lengi, er örugglega farinn að … Continue reading Morgunjazzinn
Skandinavískar húsgyðjur
Glænýr skammtur frá Þórdísi Gísladóttur: Í síðasta ráðlagða dagskammti minntist ég á skandinavískar húsgyðjur og nú er ég búin að taka saman skammt með nokkrum sænskum jazzsöngkonum sem ég hef mikið hlustað á. Síðasta áratug síðustu aldar eyddi ég að mestu í Svíþjóð. Þar er enginn skortur á jazzi og ég lagði mig dálítið fram … Continue reading Skandinavískar húsgyðjur