Skammtur dagsins var að detta inn um lúguna - frá Konráði Bragasyni: Í mínum huga er þetta svona tónlist sem maður hlustar á snemma um morgun, á leið í vinnuna i strætó. Það er dimmt úti, vetur og maður bara hálfvaknaður. Eða þá að komið sé kvöld og maður sé einn heima, í drungalegu og … Continue reading The Embassadors
Einn heppinn í Lucky
Föstudagsskammtur í boði Braga Ólafssonar: Fyrir um það bil tveimur vikum birtist færsla hér á Ráðlögðum um plötu hins nýlátna Hal Willner, Amarcord Nino Rota, og minnst var alveg sérstaklega á að tóndæmið sem fylgdi væri af vínilplötu. Sem það var. Enda hljómaði tónlistin þannig: af gamalli vínilplötu. Ég hef sjálfur átt þessa tónlist mjög … Continue reading Einn heppinn í Lucky
Lagið um Línu
Það eru fleiri að verða 75 ára um þessar mundir en Keith Jarrett. Lína langsokkur nær til dæmis þeim virðulega aldri á þessu ári. Réttara sagt eru 75 ár liðin síðan fyrsta bók Astrid Lindgren um stúlkuna Pippilotta Viktualia Rullgardina Krusmynta Efraimsdotter Långstrump kom út í Svíþjóð. Astrid Lindgren samdi söguna upphaflega árið 1941 fyrir níu … Continue reading Lagið um Línu
Það hvarflaði ekki að mér
Lagið It Never Entered My Mind eftir Richard Rogers var meðal laganna sem Miles Davis kvintettinn hristi fram úr erminni árið 1956 til að losna undan samningi við Prestige útgáfufyrirtækið. Miles hafði þá ákveðið að ganga til liðs við Columbia Records, sem þremur árum síðar gaf út Kind of Blue. Ekki alslæm ákvörðun. https://www.youtube.com/watch?v=-Np8PJDGq_A Lagið … Continue reading Það hvarflaði ekki að mér
Keith Jarrett 75 ára
Guðni Tómasson, dagskrárgerðarmaður á Rás 1, skrifar pistil dagsins: Ég var staddur í München í Þýskalandi seint á síðasta ári, kom þangað reyndar óvart í tvígang og í bæði skiptin stefndi ég á að kaupa plötu með Keith Jarrett sem á eru upptökur af tónleikum sem hann hélt í borginni árið 2016. Í bæði skiptin … Continue reading Keith Jarrett 75 ára
What is Jazz?
Jazzskammtur dagsins er í boði franska bandoneonleikarans Olivier Manoury: After reading Tómas Einarsson's post about the Gypsy singer Diego El Cigala I had a reflection on the nature of musical genres. Diego El Cigala has sung in most Latin American countries, he sang Salsa in the Caribbean, he sang Tangos in Argentina and so on, … Continue reading What is Jazz?
Ack Värmeland du sköna
Lag dagsins er hið þekkta sænska þjóðlag Ack Värmeland du sköna, sem hér fylgir í flutningi Jan Johansson og félaga hans á plötunni Musik genom fyra sekler. Þessa stórskemmtilegu og á köflum stórsérkennilegu plötu uppgötvaði ég ekki fyrr en nýlega, þegar ég tók Jan Johansson rispu eftir að hafa horft á heimildamynd um hann í … Continue reading Ack Värmeland du sköna
Hal Willner – beint af fóninum
Bragi Ólafsson skrifar: Tónlistarmaðurinn og útsetjarinn Hal Willner lést úr veirunni fyrir rétt rúmum mánuði. Hans hefur verið minnst í íslenska ríkisútvarpinu, þá aðallega af Pétri Grétarssyni í Hátalaranum, en mér finnst ekki hægt að ráðleggjarar Skammtsins láti sitt eftir liggja í þeim málum, þannig að hér er bætt úr því. Ef eitthvað er hægt … Continue reading Hal Willner – beint af fóninum
Diego El Cigala
Það er Tómas R. Einarsson, kontrabassaleikari og tónskáld, sem skrifar upp á skammtinn á þessum sólríka degi: Söngvarinn sem mig langar að skrifa um sem gestaskríbent er Spánverji, Diego El Cigala. Þegar ég var harðkjarnadjassmaður fyrir aldarþriðjungi hefði mér ofboðið að presentera flamenkósöngvara frá Andalúsíu í jafn vönduðu djassprógrammi. En þegar aldur færist yfir verður … Continue reading Diego El Cigala
Safnarabúðin og Planet Records
Bragi Ólafsson skrifar: Það væri gaman að muna hvað ég borgaði fyrir hljómplötuna Deodato 2 í Safnarabúðinni, Laugavegi, árið 1978 eða 9, hugsanlega 1977. Ekki mjög mikilvæg vitneskja, en mig minnir að yfirleitt hafi maður borgað þetta á bilinu 500 til 1000 krónur fyrir plöturnar í Safnarabúðinni (kannski frekar 700 til 1500 krónur). Nú má … Continue reading Safnarabúðin og Planet Records